Skapandi kvöldstund
Þér er boðið á skapandi stefnumót! Við skoðum list, sækjum okkur innblástur og sköpum eitthvað saman.
0 kr. er verðið á gjafakortinu. Ef gjöfin sjálf kostar eitthvað, til dæmis miðar eða hráefni, sér gefandinn um það.

Þú skrifar nöfnin og kveðjuna þegar þú gengur frá gjöfinni.
Þér er boðið á skapandi stefnumót! Við skoðum list, sækjum okkur innblástur og sköpum eitthvað saman.
Þú átt inni eitthvað hlýtt og mjúkt, handprjónað sérstaklega fyrir þig. Þú segir mér hvað þig langar í og ég tek upp prjónana!
Þú átt inni 120 mínútur af hjálp frá mér! Vantar þig aðstoð við tiltekt, að sækja eitthvað, skutl eða eitthvað sem hefur setið á hakanum? Þú segir mér hvað ég get gert og ég mæti til leiks!
Þér er hér með boðið í mat og drykk heima hjá mér! Ég sé um matseðilinn, eldamennskuna og uppvaskið. Þú mætir bara!
Skemmtilegar vísur geta fylgt fólki alla ævi. Semdu persónulega vísu fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Rímorðabókin er frábært hjálpartæki!
Taktu fram penslana og málaðu mynd sérstaklega fyrir viðtakandann. Hún þarf ekki að vera fullkomin, það er hugsunin og sköpunargleðin sem skiptir máli.
Nýttu það sem þú átt og búðu til persónulega gjöf. Jólaskraut úr textíl, máluð krukka fyllt af smákökum eða eitthvað annað fallegt sem þú býrð til getur verið frábær gjöf.