Hugmyndir

Ekki fæst allt í körfu. Hér eru hugmyndir að gjöfum sem þú býrð til, finnur eða gefur áfram, með sögu og hjarta.

Sköpun

Eitthvað sem þú býrð til, sérstaklega fyrir viðtakandann.

Hugmynd
Sköpun

Semdu vísu

Skemmtilegar vísur geta fylgt fólki alla ævi. Semdu persónulega vísu fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Rímorðabókin er frábært hjálpartæki!

Hugmynd
Sköpun

Málaðu mynd

Taktu fram penslana og málaðu mynd sérstaklega fyrir viðtakandann. Hún þarf ekki að vera fullkomin, það er hugsunin og sköpunargleðin sem skiptir máli.

Hugmynd
Sköpun

Föndraðu eitthvað fallegt

Nýttu það sem þú átt og búðu til persónulega gjöf. Jólaskraut úr textíl, máluð krukka fyllt af smákökum eða eitthvað annað fallegt sem þú býrð til getur verið frábær gjöf.

Gjafir með sögu

Hlutir sem eiga sér líf, sögu og framhald.

Hugmynd
Gjafir með sögu

Gjöf með sögu

Kíktu í skartgripaskrínið, geymsluna eða bollaskápinn. Áttu eitthvað sem á sér sögu en gæti glatt einhvern annan meira? Gefðu hlutnum nýtt líf og láttu sögu hlutarins fylgja með.

Hugmynd
Gjafir með sögu

Nýttu nytjamarkaðina

Það er hægt að gera mun betri kaup og fá vandaðri vörur ef við nýtum nytjamarkaðina í gjafakaupum.

Hugmynd
Gjafir með sögu

Gefðu eitthvað sem vantar

Ef þú veist af einhverju sem viðkomandi vantar er um að gera að bjóðast til að útvega það. Við mælum með notuðu, vönduðu og umhverfisvottuðu.

Góðverk og þekking

Gjafir sem láta gott af sér leiða eða kenna eitthvað nýtt.

Hugmynd
Góðverk og þekking

Gefðu góðverk

Styrktu hjálparsamtök eða málefni sem stendur viðtakandanum nærri og gefðu framlagið í nafni viðkomandi. Gjöf sem lætur gott af sér leiða.

Hugmynd
Góðverk og þekking

Gefðu nýja þekkingu

Gefðu þátttöku á skemmtilegu námskeiði! Að læra eitthvað nýtt er gjöf sem gefur lengi. Þú getur jafnvel skellt þér með og þá verður þetta líka góð samverustund.

Karfan þín

Karfan er tóm. Ennþá.

Hér safnast gjafirnar sem þú velur. Engin pressa, ekkert tilboð sem rennur út.

Skoða gjafirnar