Skilmálar
Lesist áður en gjöf er valin. Eða eftir á, það er líka í lagi.
1. gr. Gildissvið
Skilmálar þessir gilda um allar gjafir sem valdar eru á fallegastagjofin.is og um alla sem fá þær.
2. gr. Val á gjöf
Fallegasta gjöfin er valin af alúð með þiggjandann í huga. Hún getur verið samvera, skemmtileg upplifun, eitthvað sem vantar, hjálp við verkefni, hlutur með sögu, eitthvað sem þú bjóst til, góðverk eða tækifæri til að læra eitthvað nýtt.
3. gr. Verð
Allar gjafir kosta 0 kr. Ef gjöfin sjálf kostar eitthvað, til dæmis miðar eða hráefni, greiðir gefandinn það. Virði gjafarinnar er ekki mælt í krónum.
4. gr. Afslættir og tilboð
Hér eru engir afslættir og engin tilboð sem renna út. Gjöf sem varð fyrir valinu einfaldlega vegna þess að hún var á afslætti er sjaldnast sú dýrmætasta.
5. gr. Afhending
Gefandinn afhendir gjöfina í eigin persónu og stendur við það sem stendur á gjafakortinu.
6. gr. Skil og skipti
Samveru er ekki hægt að skila. Það má hins vegar endurtaka hana eins oft og fólk vill.
7. gr. Gildistími
Gjafakort gilda þegar þiggjandanum hentar. Þau fyrnast ekki.
8. gr. Persónuvernd
Nöfn og kveðjur sem skrifuð eru á gjafakort fara aldrei frá tækinu þínu. Karfan er geymd í vafranum og það má tæma hana hvenær sem er.